Bergur Thorberg er fæddur á Íslandi 1951. Hann hefur haldið fjölda einkasýninga og tekið þátt í samsýningum í m.a. Portugal, Danmörku, Svíþjóð, Noregi, Bandaríkjunum, Englandi og víðar. Verk hans eru í eigu listasafna, opinberra stofnanna, fyrirtækja og einkaaðila í öllum heimsálfum. Bergur er einkum þekktur fyrir málverk sín, en vinnur nú á hinum ýmsu sviðum myndlistarinnar. Áhuginn í dag beinist einkum að kaffimálverkum hans, sem hann málar jafnt á pappír og stóra striga og hafa þau vakið mikla athygli erlendis. Hefur hann verið að þróa þau sl. 15 ár. Í hinu fígúratíva málverki sínu vinnur hann á "hvolfi" þ.e.a.s. hann teiknar ekki á hefðbundinn hátt, heldur öfugt en snýr síðan verkum sínum við. Þetta fellur vel að "concepti" því sem liggur á bak við flest hans verk, sem nefnt er á ensku "open and upside down" sem mætti útleggja á íslensku sem "Opin hugur og annað sjónarhorn"

Samstarfsmaður Bergs Thorbergs og maki er Eydís Ólafsdóttir. Það þarf ekki að ræða lengi við þau hjónin til þess að finna þá lífsgleði og orku sem af þeim stafar. Þessa orku má finna í verkum þeirra líka. Eydís skrifar smásögur, eina þeirra má finna hér. Hún fékst einnig við skúlptúra sem hafa vakið mikla athygli í Portugal.

 

Sjá einnig Listadaga Gevalía og Hagkaupa á Kaffi.is

   
       

Ég get með góðri samvisku sagt, að þessi hugbúnaður er einn sá besti sem ég hef séð fyrir Windows. Þú getur pantað hann hér.

Með þessum hugbúnaði getur þú haft stjórn á "dýrinu" Windows án þess að vera sérfræðingur, og jafnvel þó þú sért sérfræðingur.

Þessi hugbúnaður er frá sama framleiðanda, þú getur pantað hann hér, þetta vantar alveg í Windows.